| Yea-Sacc 1026 – ger ætlað í fóður
nautgripa
Yea-Sacc 1026, sem er lifandi ger ætlað í fóður
nautgripa hefur verið notað víða um heim í u.þ.b.
fimmtán ár og í löndum Evrópusambandsins
síðan 2001. Yea-Sacc 1026 er nú skráð hjá Aðfangaeftirlitinu
til notkunar í nautgripi á Íslandi. Framleiðandi Yea-Sacc 1026 er Alltech, alþjóðlegt fyrirtæki á sviði örveru- og lífefnafræði. Dreifingaraðili fyrir Alltech á Íslandi er Dýralæknamiðstöðin ehf. á Hellu, sem selur Yea-Sacc beint til bænda auk þess sem flest fóðurblöndunarfyrirtæki landsins annast sölu og íblöndun Yea-Sacc 1026 í fóður. Hvernig vinnur Yea-Sacc 1026? Yea-Sacc 1026 hefur þríþætta virkni í vömbinni. Í fyrsta lagi örvar gerið þær örverur sem melta tréni, þannig að bæði fjöldi þeirra og virkni eykst. Rannsóknir hafa sýnt að meltanleiki trénis (NDF) eykst um 10%. Í öðru lagi, örvar Yea-Sacc örverur sem umbreyta mjólkursýru í veikari sýru. Á þennan hátt dregur Yea-Sacc úr hættunni á súrri vömb, sem er oft samfara mikilli gjöf auðmeltra kolvetna. Í þriðja lagi leiðir aukinn örverufjöldi í vömbinni til um 15% aukinnar framleiðslu örverupróteins, sem hækkar þá í raun AAT gildi fóðursins umtalsvert. Hver er ávinningurinn við notkun Yea-Sacc 1026 hjá mjólkurkúm? Átgeta kýrinnar takmarkar möguleika hennar til mjólkurframleiðslu. Þetta er sérstaklega mikilvægt í byrjun mjaltaskeiðsins þegar kýrnar eru jafnan í neikvæðu orkujafnvægi. YeaSacc1026 eykur vambarstarfsemina og rannsóknir sýna að búast megi við um 5% aukningu í áti. Mikilvægt er að halda sýrustigi vambarinnar innan eðlilegra marka. Þegar mikið kjarnfóður er gefið er óhjákvæmilegt að sýrustigið lækki nokkuð. Lágt sýrustig hefur neikvæð áhrif á niðurbrot trénis og getur valdið meltingartruflunum.Yea-Sacc1026 stemmir stigu við lækkun sýrustigs í vömbinni með því að lækka styrk mjólkursýru í vambarvökvanum. Aukin framleiðsla örverupróteins í vömbinni þýðir
aukna möguleika til mjólkurframleiðslu og betra próteinhlutfall í mjólk. Aðrir notkunarmöguleikar Yea-Sacc Yea-Sacc 1026 er einnig notað við uppeldi á kálfum og kvígum og í nautakjötsframleiðslu. Rannsóknir sýna að þyngdaraukning eykst umtalsvert eða um 13% hjá kálfum og 7-9% hjá eldri gripum. Hvernig er Yea-Sacc 1026 gefið? Yea-Sacc er framleitt í tveimur styrkleikum, annars vegar Yea-Sacc til íblöndunar í kjarnfóður hjá fóðurblöndunarstöðvum (1,5 g/kg fóðurs) og hins vegar Yea-Sacc Farm Pak til notkunar á búunum. Magn gefið er sýnt í meðfylgjandi töflu. Yea-Sacc 1026 skammtastærðir:
Hvernig er hægt að nálgast Yea-Sacc? Flest fóðurblöndunarfyrirtæki landsins annast sölu og íblöndun Yea-Sacc 1026 í fóður, en dreifingaraðili fyrir Yea-Sacc Farm Pak er Dýralæknamiðstöðin ehf. þjónusta og ráðgjöf á Hellu. Verð: |
Dýralæknamiðstöðin ehf, Dynskálum 30, IS-850 Hellu, s: 4875141, fax: 4875341, dlm@rang.is