Votheysverkun í rúllum, flatgryfjum eða turnum

Hvað er vothey?

Segja má að það séu notaðar þrjár aðferðir til að varðveita gras til fóðrunar yfir vetrarmánuðina. Í fyrsta lagi er það þurrheysverkun, sem miðast við það að fjarlægja svo mikinn raka úr heyinu að örverur ná ekki að fjölga sér. Þetta þýðir að þurrefnisinnhaldið þarf að vera yfir 80%.

Í öðru lagi er það votheysverkun þar sem forþurrkuðu grasinu (allt að 40% þurrefni) er komið fyrir við loftfirrtar aðstæður (rúllur, flatgryfjur og turnar). Umhverfisbakteríur í grasinu nýta sykurinn í grasinu til niðurbrots og meðan súrefni nýtur þá endar þetta ferli í koltvísýringi og vatni. Þegar súrefnið er uppurið fer gerjun af stað og þá gengur niðurbrotið “til hálfs” og ediksýra, etanól og mjólkursýra eru helstu afurðirnar. Gerjun krefst raka og gengur best þegar þurrefnisinnihald er minna en 40%.

Í þriðja lagi er heyverkun þar sem grasið er hálfþurrkað (40 – 65%) og komið fyrir við loftfirrtar aðstæður. Þetta þurrkstig er ekki nóg til að stöðva örveruvöxt ef súrefni nýtur, en samt of hátt til að gerjun nái að lækka sýrustigið svo nokkru nemi.

Kostir votheysverkunar

Við þurrkun á velli á sér stað mikið tap á næringarefnum. Efnaskiptin í plöntunni halda áfram og næringarefnunum er breytt í koltvísýring og vatn. Meðhöndlun á þurrlegu heyi á velli veldur einnig molnun og við það tapast hluti blaðanna, sem eru næringarríkastu hlutar plöntunnar. Almennt er talið að við fullþurrkun á velli tapist á bilinu 20-30% næringarefna. Til að minnka þetta næringartap er nauðsynlegt að sem minnstur tími líði frá því að gras er slegið þar til því er komið fyrir í öryggri geymslu. Til að lágmarka vökvamyndun og frárennsli frá vothey og þar með næringartap er þó nauðsynlegt að forþurrka grasið í a.m.k. 30%.

Hálfþurrkun grass er algeng þegar gras er verkað í rúllum. Næringartap er umtalsvert við þessa verkun en það sem verra er, er að lystugleiki er oft lakari, en þegar gras er verkað í vothey. Einnig er umtalsverð hætta á myndun eiturefna, samfara vexti sveppa og myglu, við þessa verkun og án efa á mikilvægi þess eftir að koma betur í ljós á næstu árum.

Votheysverkun er ekki jafn háð veðurfari og önnur verkun. Við votheysverkun verður minna næringarefnatap. Próteinniðurbrot er þó umtalsvert við hefðbundna votheysgerð, sem veldur því að AAT lækkar en PBV hækkar. Vel verkað vothey er yfirleitt lystugt og hentar nautgripum vel og sérstaklega hentar vothey vel til heilfóðurgerðar.

Í blöndunarefni í votheysgerð

Mikill fjöldi íblöndunarefna hafa verið notuð í votheysgerð. Flest miða þau að því að lækka sýrustigið í heyinu þ.e. tryggja örugga verkun í byrjun t.d. Sil-All 4x4. Önnur draga úr mygluskemmdum þegar súrefni kemst að heyinu t.d. Mold-Zap. Nokkur efni þ.á.m. Sil-All Fireguard hafa tvíþætta virkni þ.e. tryggja örugga verkun í byrjun og auka geymsluþol og draga úr hættu á myglu þegar rúllan, flatgryfjan eða turninn er opnaður.

Sil-All íblöndunarefni

Umhverfisgerlarnir í grasinu eins og áður segir framleiða ýmsar óæskilegar sýrur og niðurbrotsefni og valda þar með miklu næringartapi. Sil-All íblöndunarefna byggja á mjólkursýrugerlum sem keppa við umhverfisgerlana og tryggja einsleita og örugga gerjun (mynd 1). Sil-All smitar hvert gramm af votheyi með einni milljón mjólkursýrugerla. Vothey meðhöndlað með Sil-All íblöndunarefni skilar 4-5% meira þurrefni og um 10% hærra AAT gildi vegna þess að gerjunin gengur hraðar og óæskileg efnaskipti umhverfisgerla stöðvast fyrr.

Sil-All er framleitt af Alltech, alþjóðlegu fyrirtæki á sviði örveru- og lífefnafræði. Sil-All er í forystu á Norðurlöndum og Evrópu. Sil-All er viðurkennt af FAAS (Forage Additive Approval Scheme), sem vottar þar með örugga virkni þess.

Sil-All 4x4 inniheldur fjórar tegundir mjólkursýrugerla og fjórar tegundir hvata (tafla 2). Mjólkursýrugerlarnir tryggja það að sýrustigið fellur hratt (mynd 2). Hvatarnir brjóta niður fjölsykrunga og skapa aukið framboð sykurs fyrir mjólkursýrugerlana. Sil-All 4x4 hentar í vothey með allt að 35% þurrefni.

  Gerlar Hvatar Myglu varnarefni
Sil-All 4x4 Enerococcus faecium
Lactobacillus plantarum
Pediococcus acidilactici
Lactobacillus salivarius
Cellulase Hemicellulase
Pentosanase Amylase
 
Sil-All Fireguard Lactobacillus plantarum
Pediococcus acidilactici
Lactobacillus salivarius
Cellulase
Hemicellulase
Amylase
Na benzoate
K sorbate

Tafla 2. Innihald Sil-All íblöndunarefna.

Sil-All Fireguard inniheldur líkt og Sil-All 4x4 mjólkursýrugerla og hvata en auk þess mygluvarnarefnin sorbat og benzoate. Sil-All Fireguard hentar í vothey með allt að 50% þurrefni.

Mold-Zap íblöndunarefni

Mold-Zap inniheldur buffraða própíonsýru (ammonium di-propionate) sem umbreytist í eiginlega própíonsýru við það að komast í snertingu við raka. Þetta form própíonsýrunnar gerir það að verkun að hún er mun hættuminni gagnvart fólki og veldur lítilli tæringu á vélum þar sem sýrustigið er mun hærra (pH 5,6 sbr. pH 1,5 fyrir própíonsýru). Mold-Zap er meðal annars ætlað í þurrlegt rúlluhey (> 60% ÞE).

Rannsóknir sýna að Sil-All íblöndunarefni tryggja betri verkun votheys, lystugra fóður og minna næringartap. Aukið át og betra næringargildi þýðir meiri mjólk, sem gerir Sil-All mjög arðbæran þátt í mjólkurframleiðslunni.

Dýralæknamiðstöðin ehf, Dynskálum 30, IS-850 Hellu, s: 4875141, fax: 4875341, dlm@rang.is