Dagbók
Fróðleikur
Starfsfólk
Þjónusta
Vörur

Tenglar

ÍBLÖNDUNAREFNI TIL HEYVERKUNAR

Íblöndunarefnin sem Dýralæknamiðstöðin ehf býður eru framleidd hjá Alltech, alþjóðlegu fyrirtæki á sviði örveru- og lífefnafræði. Alltech fer náttúrulegar leiðir og allar framleiðsluvörur þeirra eru vistvænar. Íblöndunarefnin eru viðurkennd af FAAS (Forage Additive Approval Scheme), sem vottar þar með örugga virkni þeirra.

Almenn viðvörun:
Varist að efnin berist í augu og öndunarveg.
Notið hanska og hlífðargleraugu.
Geymist þar sem börn ná ekki til.


Sil-All 4x4 inniheldur fjórar tegundir mjólkursýrugerla og fjórar tegundir hvata. Mjólkursýrugerlarnir tryggja það að sýrustigið fellur hratt. Hvatarnir brjóta niður fjölsykrunga og skapa aukið framboð sykurs fyrir mjólkursýrugerlana. Sil-All 4x4 hentar í vothey með allt að 35% þurrefni.
Notkunarleiðbeiningar:
1. Setjið innihald pokans (250g) í 5-10 lítra af vatni
2. Leysið efnið vel upp
3. Bætið vatni í þar til 50 lítrum er náð
4. Notið 2 lítra af lausn í hvert tonn af fóðri.
5. Best er að nota lausnina samdægurs en hún er nothæf í 48 klst.
Pakkning:
250 g í poka sem dugar í 25 tonn af votheyi (ca. 35 rúllur, 35 m3 í flatgryfju og 30 m3 í turni).
Verð:
250 g á kr: 6.870 + vsk. Númer: ATSA4x4
Nánari upplýsingar um votheysverkun


Sil-All Fireguard inniheldur líkt og Sil-All 4x4 mjólkursýrugerla og hvata en auk þess mygluvarnarefnin sorbat og benzoate. Sil-All Fireguard hentar í vothey með allt að 50% þurrefni.
Notkunarleiðbeiningar:
1. Setjið innihald pokans (7,5 kg) í 50 lítra af vatni
2. Leysið efnið vel upp
3. Bætið vatni í þar til 100 lítrum er náð
4. Notið 2 lítra af lausn í hvert tonn af fóðri.
5. Best er að nota lausnina samdægurs en hún er nothæf í 48 klst.
Pakkning:
7,5 kg í poka sem duga í 50 tonn af votheyi (ca. 70 rúllur, 70 m3 í flatgryfju og 60 m3 í turni).
Verð:
7,5 kg á kr: 15.900 + vsk. Númer: ATSAFIRE
Nánari upplýsingar um votheysverkun


Mold-Zap inniheldur buffraða própíonsýru (ammonium di-propionate) sem umbreytist í eiginlega própíonsýru við það að komast í snertingu við raka. Þetta form própíonsýrunnar gerir það að verkun að hún er mun hættuminni gagnvart fólki og veldur lítilli tæringu á vélum þar sem sýrustigið er mun hærra (pH 5,6 sbr. pH 1,5 fyrir própíonsýru). Mold-Zap er meðal annars ætlað í þurrlegt rúlluhey (> 60% ÞE).
Notkunarleiðbeiningar:
1. Lausnin notast óþynnt.
2. Notið 4 lítra af lausn í hvert tonn af fóðri.
Pakkning:
25 lítrar í brúsa sem duga í 6 tonn af heyi (ca. 15 rúllur).
200 lítrar í tunnu sem duga í 50 tonn af heyi (ca. 125 rúllur).
Verð:
25 lítrar á kr: 5.775 + vsk. Númer ATMZ25
200 lítrar á kr: 44.350 + vsk. Númer ATMZ200
Nánari upplýsingar um votheysverkun


Vefhönnun: Sólrún Harðardóttir Dýralæknamiðstöðin ehf, Dynskálum 30, IS-850 Hellu, s: 4875141, fax: 4875341, dlm@rang.is