Dagbók
Fróðleikur
Starfsfólk
Þjónusta
Vörur
Tenglar
|
Grétar
Hrafn Harðarson
Nám: Tók stúdentspróf
frá Menntaskólanum í Reykjavík 1973.
Lauk háskólaprófi í dýralækningum
frá Royal (Dick) School of Veterinary Studies í Edinborg
1978. Framhaldsnám í fóðrun og efnaskiptasjúkdómum nautgripa
(M.Phil) 1980.
Störf: Starfaði hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins við landnýtingarverkefni
sumarið 1975. Dýralæknir hjá Jóni
Guðbrandssyni héraðsdýralækni á Selfossi
og settur héraðsdýralæknir þar í sumarleyfi
héraðsdýralæknis 1976 og 1977. Starfaði
við rannsóknir á lífefnafræðideild
Mordun Research Institute, Edinborg, Skotlandi haustið 1977.
Dýralæknir við tilraunastöðina á Keldum
frá júlí - desember 1978. Ráðinn
dýralæknir hjá G.N.
Gould and Partners í Hamshire, S-Englandi haustið 1980.
Starfaði sem gæðastjóri og dýralæknir
við Holtabúið á Ásmundarstöðum í Ásahreppi
1982-1985. Skipaður héraðsdýralæknir í Helluumdæmi
1. janúar 1986 og gegndi því starfi þar
til embættið var lagt niður 30. nóvember
1999. Tilraunastjóri hjá Rannsóknastofnun
landbúnaðarins með starfsaðstöðu á Selfossi
og Stóra-Ármóti Hraungerðishreppi frá janúar
2000 til desember 2004. Tilraunastjóri hjá Landbúnaðarháskóla
Íslands frá janúar
2005. Einn af stofnendum og dýralæknum
Dýralæknamiðstöðvarinnar ehf á Hellu.
Sinnir þjónustu og ráðgjöf einkum á sviði
nautgriparæktar.
Ellert Þór Benediktsson
Nám: Tók stúdentspróf
frá Verzlunarskóla Íslands 1987. Lauk háskólaprófi í dýralækningum
frá Den Kongelige Veterinær- og Landbohøjskole í Danmörku
1996. Almennt dýralækningaleyfi í Danmörku í janúar
1996.
Störf: Aðstoðarmaður á rannsóknastofum
hjá Novo Nordisk í Danmörku frá okt.
1993 til nóv. 1994. Dýralæknir hjá Ullits
Dyrlæger Aps í Farsø kommune, Danmörku
1996-2000. Hálft starf sem eftirlitsdýralæknir
hjá héraðsdýralækni Suðurlands
frá mars 2000 til og með desember 2001. Einn af
stofnendum Dýralæknamiðstöðvarinnar
ehf á Hellu.
Guðmundur Bjarnason
Nám: Tók stúdentspróf
frá Flensborgarskólanum í Hafnarfirði 1989.
Lauk háskólaprófi í dýralækningum
frá Den Kongelige Vererinær- og Landbohøjskole í Danmörku í september
1996. Almennt dýralækningaleyfi í Danmörku í september
1996 og á Íslandi í júlí 1999.
Störf: Starfaði með dýralæknum í Danmörku
frá desember 1996 til júlí 1999. Settur
héraðsdýralæknir Helluumdæmis í sumarafleysingum
frá 15. júlí til 15. september 1999. Aðstoðardýralæknir
hjá Grétari Hrafni Harðarsyni, héraðsdýralækni
Helluumdæmis, frá 1. desember 1999 til 1. janúar
2002. Einn af stofnendum Dýralæknamiðstöðvarinnar
ehf á Hellu.
|